Karellen
news

Sjáðu mig - endurskinsmerki

08. 12. 2020

Sjóvá, Samgöngustofa og Slysavarnarfélagið Landsbjörg eru með samstarfsverkefnið Sjáðu mig og gáfu öllum börnum og starfsmönnum í Ársölum endurskinsmerki í dag. Slysavarnardeildin Drangey og Björgunarsveitin Skagfirðingasveit sáu um að koma merkjunum í leikskólann og útbjuggu myndband sem börnin horfðu á og fjallaði það um starf þeirra og hvað það er mikilvægt að nota endurskinsmerki. Við þökkum kærlega fyrir þessa góðu gjöf. Á myndinni má sjá Gurru afhenda Öllu og Sólveigu endurskinsmerkin.

© 2016 - 2024 Karellen