Karellen
news

Glitraðu með okkur 28. febrúar

24. 02. 2022

Mánudaginn 28. febrúar ætlum við að hafa glitrandi dag í tilefni af því að félagið Einstök börn er að vekja athygli á sjaldgæfum sjúkdómum og heilkennum. Í þessu felst að glitra sig upp sem getur verið að klæðast einhverju glitrandi eins og glimmeri eða pallíettum. Í Ársölum erum við svo heppin að vera með barn/börn sem eru í félaginu Einstök börn og væri því gaman ef börn og starfsmenn tækju þátt með því að mæta í einhverju eða með eitthvað glitrandi næsta mánudag.

© 2016 - 2024 Karellen