Karellen
news

Breytingar á opnunartíma leikskólans

23. 01. 2024

Á fundi fræðslunefndar í síðustu viku var gerð eftirfarandi bókun:

Opnunartími leikskólans Ársala

2401014

Lagt fram minnisblað frá leikskólastjóra Ársala þar sem farið er yfir vistunartíma barna í leikskólanum. Yngra stig leikskólans er opið frá kl. 7:45-16:15 og eldra stig er opið frá kl. 7:45-16:30.

Nefndin samþykkir að stytta opnunartíma á eldra stigi Ársala frá og með 1. júní 2024 og felur starfsmönnum nefndarinnar í samstarfi við leikskólastjórnendur að láta foreldra vita við fyrsta tækifæri.

Frá og með 01.06.24 verður opnunartími leikskólans því 7:45-16:15 á báðum stigum.

© 2016 - 2024 Karellen